Fara í aðalinnihald

Færslur

Sérvalið

Jólin okkar

Jólin voru frekar skrítin þetta árið, fyrir mig það er að segja. Krakkarnir voru hjá pabba sínum, en við héldum upp á Jólin annan í jólum. Við borðuðum góðan hátíðarmat, opnuðum pakka og fórum öll seint að sofa. Krakkarnir voru himinlifandi við öllum pökkunum sem þau fengu, helling af dóti og hellingur af nýjum fallegum fötum.. ég er allavega viss um það að ég kem ekki til með að þurfa kaupa ný föt út næsta ár. Á meðan við opnuðum pakkana vildi Lóa fá að lesa með. Hún er aðeins farin að læra um stafina, þannig hún vissi að ef það stóð B var það til bróðir hennar og Ó fyrir hana. Hún knúsaði alla innilega á meðan hún opnaði pakkana og var alveg í essinu sínu. Bastian var á 'ruslavakt´, hann sá um að setja allan papírin utan af gjöfunum beinustu leið í ruslið.  Núna á meðan ég skrifa þetta eru þau sofandi.. með helminginn af gjöfunum sínum með sér😅 Þó svo þessi jól voru öðruvísi að þá gefur það okkur svigrúm til að skapa nýjar hefðir, stundum koma jólin nokkrum dögum seinna. Leyfi n...

Nýjustu færslur

Koppa æfingar- Verðlauna spjald